Dýrðlegir Dýrafjarðardagar

Á föstudaginn ákváðum við mæðgurnar að skreppa burtu úr "bænum" um helgina og taka litla prinsinn með okkur að sjálfsögðu. Þar sem sumarfríið í leikskólanum er byrjað. Keyptum okkur tjald, vindsæng, stóla og borð og brunuðum á Þingeyri. Þar voru svokallaðir Dýrafjarðardagar og ýmsar uppákomur og skemmtun.júní 2008 235

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna vorum við loksins búin að tjalda herlegheitunum.

Á föstudagskvöld fórum við á tónleika hjá Lilju og Hauki í Þingeyrakirkju. Ótrúlega gaman.

Laugardagurinn var hoppukastalar, andlitsmálning og gasblöðrur....júní 2008 243

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ólöf Dagmar var svolítið kvefuð en lét það ekki á sig fá.

júní 2008 244

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hérna er verið að blása í höfrunginn. Bleikur handa báðum.

júní 2008 241

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru hressar konur úr Dýrafirðinum með allskyns spennandi varning á boðstólnum.

júní 2008 239

 

 

 

 

 

 

 

Sigurjón Dagur á tjaldsvæðinu.

 

 

 

 

júní 2008 240Það var sól og blíða alla helgina.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var útihátíðarstemning með gömlum kempum úr skriðjöklum og stuðkompaníinu á laugardagskvöldið, og nú með hljómsveitina Hunang. Maður komst alveg 25 ár aftur í tímann..... hjálp hvað tíminn líður hratt. En því miður náði ég ekki mynd af þessari frábæru hljómsveit þar sem batteríin voru búin í myndavélinni.

En frábær helgi og allir rosa glaðir. Þá er bara að spá í hvert stefnan verður tekin næstu helgi. 

SjáumstWink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir síðast. Ég er konan með bleika Höfrunginn

Vinkona mín sá þessa mynd af mér á moggasíðunni. Skemmtileg tilviljun

Vonandi sjáumst við aftur að ári.

kveðja úr Dýrafirðinum.

Gunnhildur (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 20:46

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vá hvað þetta eru skemmtilegar myndir Sigga mín, og börnin yndisleg, ömmukrýlin.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.7.2008 kl. 21:40

3 identicon

Ég er viss u að við komum aftur á næsta ári Gunnhildur.

Elsku amma takk fyrir kíkið.

Sigríður Inga Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband