9.7.2008 | 01:34
Björgun hestsins
Í kvöld fékk ég sérkennilega vitjun og þó. Hestur einn, Þröstur að nafni hafði fest sig ofaní skurði og kannski legið þar pönnu flatur í 12-18 tíma. Óvíst er þó með nákvæma tímasetningu. Þröstur slapp úr prísundinni en var ansi þrekaður og þreyttur en hafði ekki þrek að standa sjálfur.
Hérna liggur greyið .Bönd voru sett á hann til að lyfta honum upp úr skurðinum. Hann var ansi blautur og kaldur enda lá hann í læk.
Eins og sést á þessari mynd er hesturinn kýldur niður í skurðinum og gat sig hvergi hreyft.
Hérna erum við að koma honum upp úr skurðinum
Eins og sjá má er Þröstur alveg búinn á því. En örugglega dauð feginn að vera kominn á þurrt...
Hann var alveg vitlaus í að gæða sér á grasinu enda ekki mikið að narta í síðasta sólarhring eða svo.
Svo var að athuga hvort hann gæti staðið uppi.
Grafan var alveg nauðsynlegt tæki í björgunaraðgerðunum.
Svo var hann settur í teppi og fluttur nær bænum.
Loksins kominn á næturstað með teppi undir og yfir. Svo er bara að hvíla sig og safna kröftum fyrir morgundaginn. Þá er bara að vona að Þröstur komist á lappir á ný.
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.7.2008 | 01:12
Mæðiveiki hvað?
Tákngervingur frelsis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2008 | 21:18
Dýrðlegir Dýrafjarðardagar
Á föstudaginn ákváðum við mæðgurnar að skreppa burtu úr "bænum" um helgina og taka litla prinsinn með okkur að sjálfsögðu. Þar sem sumarfríið í leikskólanum er byrjað. Keyptum okkur tjald, vindsæng, stóla og borð og brunuðum á Þingeyri. Þar voru svokallaðir Dýrafjarðardagar og ýmsar uppákomur og skemmtun.
Þarna vorum við loksins búin að tjalda herlegheitunum.
Á föstudagskvöld fórum við á tónleika hjá Lilju og Hauki í Þingeyrakirkju. Ótrúlega gaman.
Laugardagurinn var hoppukastalar, andlitsmálning og gasblöðrur....
Ólöf Dagmar var svolítið kvefuð en lét það ekki á sig fá.
Hérna er verið að blása í höfrunginn. Bleikur handa báðum.
Hér eru hressar konur úr Dýrafirðinum með allskyns spennandi varning á boðstólnum.
Sigurjón Dagur á tjaldsvæðinu.
Það var sól og blíða alla helgina.
Svo var útihátíðarstemning með gömlum kempum úr skriðjöklum og stuðkompaníinu á laugardagskvöldið, og nú með hljómsveitina Hunang. Maður komst alveg 25 ár aftur í tímann..... hjálp hvað tíminn líður hratt. En því miður náði ég ekki mynd af þessari frábæru hljómsveit þar sem batteríin voru búin í myndavélinni.
En frábær helgi og allir rosa glaðir. Þá er bara að spá í hvert stefnan verður tekin næstu helgi.
Sjáumst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.7.2008 | 02:03
Alltaf á ferðinni
Í dag fór ég enn á ný í smá ferðalag. Næstu tvær vikurnar verður ekki mikill tími til þess að flakka, þar sem sonur minn, þriggja ára fer frí í leikskólanum. Ég fæ fæ frí 21. júlí og verða börnin að dröslast með mér hvert sem ég fer næstu tvær vikurnar.... Þau læra vonandi eitthvað spennandi af því..
Ég þurfti einnig að safna plöntum í grasasafnið mitt, þar sem ég er nú komin í garðyrkjuskólann.....
En lang flottasta einbreiða brúin er í vatnsfirði og ég mæli með að einhver reyni að "toppa" hana.
Ananrs allt gott að frétta frá miðdepli alheimsins.
Sjáumst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.7.2008 | 10:09
"Hlaupa hraðar"
Uppsagnir RÚV á landsbyggðinni er alveg týpískt útspil hjá þessari dæmalausu stofnun. Páll Magnússon vil að fólk "hlaupi dálítið hraðar"!....... Eru nokkur takmörk fyrir ósvífninni hjá sumum? Hvernig væri að hann sjálfur gerði það? Ég á bara ekki til orð.
Landsbyggðarfréttum fækkar hjá Ríkisútvarpinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2008 | 19:39
Pottormar
í dag er ég búin að vera í letikasti. Sofa og lesa og auðvitað passa börnin mín. En þar sem amma og afi eru hjá okkur, þá fæ ég smá tíma af og til ,fyrir sjálfa mig. Bókin sem ég las er um kaupóða konu og fíknin í að kaupa eitthvað er öllu öðru yfirsterkara. Hún notar hvert tækifæri til að versla eitthvað fáránlegt og lýgur svo að öðrum ef það hentar. Hræðilegt að lenda í klóm fíknarinnar, sama hver hún er.
En nóg um það. Ég fór svo í pottinn og tók nokkrar myndir af börnunum mínum sem fíla þennan pott alveg í botn.
Lífið er og verður ljúft.
Sjáumst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.6.2008 | 23:17
Loksins rigning og rok
Undanfarna vikur hefur ekki rignt. En nú rignir eldi og brennisteini.....Í gær fór ég aftur á mínar "uppáhaldsheiðar" Veðrið var frábært og enginn á ferðinni sem betur fer. Þurftum ekki að stoppa, eða klessa á neinn.
Hér er mynd frá Ketildölunum. Rosaleg náttúrufegurð.
Arnarfjörðurinn.
Flott tjaldstæði þarna.....
Ein mynd í tilefni dagsins, þar sem von er á hálku og illviðri fyrir austan...
Sjáumst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.6.2008 | 12:14
Glætan
Það hlýtur að vera erfitt að krefjast hærri launa, þegar maður er með yfir 800 þúsnd á mánuði. Hef ekki samúð með flugumferðastjórum í þessari lönguvittleysu. Verst er að þetta kemur til meða að bitna á saklausum ferðamönnum. Hvað má fólk segja sem er með laun undir 200 þúsund á mánuði. Ég held að fólk sem lætur svona ætti að snúa sér að einhverju öðru djobbi. Sorrý en þetta er mín skoðum.
Framtíðar ferðamáti Íslendinga.
Ekkert flogið innanlands í fjóra klukkutíma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2008 | 02:39
Kárahnjúkavirkjun
Mig langar að varpa fram nokkrum spurningum.
Hver borgar Karahnjúka?
Hvað kostar þetta?
Af hverju er ekki hlustað á fólkið sem á þjóðlendur við Þjórsá?
Er ekki farið að styttast í að við þurfum kvóta, til að anda að okkur O2 ( já akkúrat súrefni)
Erum við að selja orkuna okkar fyrir ekki neitt????
Hjálp.....Hér duga enginn vettlingatök.
Hver ætlar að svara???????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2008 | 21:42
Kettir og svín
Svín lifði í 36 daga í rústum í Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)