12.8.2008 | 00:56
Ennþá smá eftir af sumrinu....
Það er alltaf nóg að gera hjá okkur í sumarfríinu. Á laugardaginn fórum við í sund í Bolungarvík. Þar er vatnsrennibraut og krakkarnir hafa þá nóg að gera. Ólöf Dagmar, Ísabella og Sigurjón Dagur tilbúin í slaginn.
Um kvöldið var farið í Hlíðarvegspúkapartý. Þar var grillað, borðað og sungið. Í lokin var tendrað bál.
Sigurjón Dagur að leika sér.
Sumir voru búnir að fá nóg og fór að sofa í kerrunni sinni með nýja Leiftur mc queen svefnpokann sinn.
Hljómsveitin í þvílíka stuðinu og spilaði frábærlega. Benni og félagi.
Hér er verið að afhenda viðurkenningar, til þeirra sem lengst hafa búið á Hlíðarvegi.
Á sunnudaginn fórum við í sund á Ísafirði og prinsessan á heimilinu ánægð með helgina.
Sjáumst.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.