7.8.2008 | 23:32
Glitrós
Þessa dagana er ég í mínu langþráða sumarfríi. Ég læt mér þó ekki leiðast og nú er ég á fullu að týna blóm, tré og runna í grasasafnið mitt. Um daginn var ég að skoða bók og fann þar rosa flotta plöntu sem lifir villt á einum stað á landinu. Mér datt í hug að gaman væri að skreppa austur og berja hana augum. En ég hafði svo sem ekki tíma til þess þrátt fyrir þessa ágætu hugdettu. En eins og í sögunni um Barbapabba þegar hann ferðaðist um hálfan heiminn til að finna Barbamömmu og fann hana svo í garðinum heima hjá sér........ hvað haldið þið að ég hafi fundið bak við húsið í mínum eigin garði? Glitrós, í öllum sínum skrúða. Mér líður svolítið eins og Barbapabba.....
Sjáumst.
Athugasemdir
Kannski er hún ættuð úr Holtsdal
Hólmdís Hjartardóttir, 7.8.2008 kl. 23:40
Mig grunar að þau Laufey og Höskuldur hafi plantað henni þarna fyrir c.a. 12 árum.
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 7.8.2008 kl. 23:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.