Sandurinn í glasinu.....

Hatturinn á hilluna...... Það er víst ekkert annað en það um að segja.........Police
mbl.is Lögregla í sandkassaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugldagur

Á föstudagsmorguninn vaknaði minn sonur og klæddi sig til að fara í leikskólann. Þegar hann var kominn í sokkana, sýndi hann mér gat á sokknum þar sem stóra táin stóð út úr. Hann bað um að ég "límdi" þetta saman. Hann fékk þá bara annan sokk sem var ólíkur hinum. Þegar við komum í leikskólann sá ég að ein fóstran var í brjósthaldara yfir peysunni..... Ég verð að segja að mér leist ekkert á þetta.... Var þetta eitthvað ný tíska sem ég hef algjörlega misst af? Allavega þótti mér hún frekar kræf að koma svona á leikskólann... Þá datt mér í hug að hún hefði kannski eitthvað ruglast í morgunsárið.... Á leiðinni út af leikskólanum, spurði ég eina konu sem var líka á leiðinni út, hvort hún hefði tekið eftir þessu með brjósthaldarann... Þá sagði hún: Það er RUGLDAGUR í dag og þá mega börnin og fóstrurnar koma í sitthvorum sokk, í peysu á röngunni ofl....... þá mætti ég einum litlum dreng,sem var með sokkabuxurnar á hausnum......LoLÁgúst 2008 151

 

 

 

 

 

 

 

 

 júní 2008 187


Vorið fæddist til þess að deyja

Kona er og verður mitt uppáhald alveg sama hvað einhver "spekúlant" á Rás 2 hefur að segja. Eiginlega er ég alveg að gefast upp á Rás 2.... alltaf sömu lögin...ekki mín uppáhalds....Ég meina eru sumir á Rás 2, orðnir einhverjir allsherjar "besservisserar"???   Whistling Sumarið er farið, það fraus í hylnumWink 


mbl.is Bubbi hefur gert betur en á Konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er ein báran stök

Það verður nóg að gera hjá Birni Bjarnasyni, á næstunni, að auglýsa, lausar lögreglustjórastöður ef þetta heldur svona áfram...... Blush Whistling
mbl.is Mulið undir Ríkislögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánin endalausu......

Það hafa margir hrikalegar sögur að segja af sínum bankaviðskiptum. Lánin hækka og hækka þrátt fyrir að fólk borgi og borgi og borgi og.......Hvar endar þetta. Verður fólksflótti frá litla Íslandi. Maður heyrir um gull og græna skóga í Noregi og víðar. Hvað gera bankarnir þá? Þeir hljóta að sitja uppi með ógrynni af  íbúðum og húsum sem enginn hefur ráð á. Hversu lengi getum við þolað þessa verðtryggingu á okkar lánum?  Ber virkilega enginn ábyrgð á þessu nema almenningur sem ætlaði aðeins að skaffa sér þak yfir höfuðið? Svar óskast sent.......Shocking

Einbýli er best

Þetta er með ólíkindum, ég meina eru ekki einhver takmörk fyrir ruglinu???...... Ég man þegar ég heyrði um þetta mál fyrst og þá blöskraði mér meðferðin á Herberi og fjölskyldu og nú heldur málið áfram......... Ég styð Herbert heilshugar enda um stórgölluð lög og reglur að ræða. Raðhús orðin að blokk  og svo framvegis...... Ekki skrýtið að maður fjarfestir í EINBÝLISHÚSI!!!!!ShockingHliðarvegur 025


mbl.is Neitar að borga þak nágrannans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litlir, óboðnir gestir

Það fjölgaði á Urðarvegi 16. Það kom nýr naggrís, mjög loðinn og sætur. Það fyrsta sem dóttir mín sagði þegar hún leit hann augum: ER HANN MEÐ LÚS???  Ég var reyndar búin að sjá smá "flösu" á honum en hvenær eru mín dýr veik eða með lús? Aldrei.......En lús var það og þvílíkt magn á einum naggrís. Hann greinlega iðar eða iðaði. Nú er hann búinn að fá "meðferð" og líka félagi hans sem við áttum fyrir.  Sendi ykkur mynd af herlegheitunummarsvína lús..... Ekki alveg laust við að manni fari aðeins að klæja......

SjáumstCool


Árrisult svín

Ótrúleg frekja í þessum svínum.....ég meina vekja mann klukkan 5 á morgnanna! Caroline gerði bara ein mistök, það var að láta ekki bara gelda Brúsa og þá  hefði hann kannski haldið sig á mottunni....Whistling 


mbl.is Göltur heldur konu í gíslingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nauðsynlegt að senda þá......?

Ekki er nú öll vitleysan eins. Það sem mér fannst eftirtektavert við þetta hjá Ingibjörgu, er þessi endalausa bjartsýni yfir framtíðinni... og nú á að taka til hendinni og hjálpa til....en það er gott, þá fer ekki almenningur á hausinn.......Sideways En eitt finnst mér óhófleg bjartsýni og það er þetta með að "senda áhættufíklana í meðferð" Hingað til hefur fólk þurft að velja það sjálft að fara í meðferð, en ekki vera send í hana. Þetta á við um flesta fíkla, og örugglega líka áhættufíkla.....Woundering 


mbl.is Áhættufíklar sendir í meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kindur,klukk og kisa

Í gær þurfti ég að skreppa aðeins út í sveit og á leiðinni í myrkri og roki munaði minnstu að ég keyrði niður tvær kindur. Ég var ekki á mikilli ferð (sem betur fer) og bremsuborðarnir brunnu yfir. Á meðan ég lá á bremsunni, og reyndi að koma í veg fyrir slys, þá hugsaði ég: ég keyri ekki á þessar kindur, ég hef "sloppið" við það hingað til og ég skal sleppa áfram...... og þær rétt sluppu, sem betur fer.

En ég var klukkuð...

Fjögur störf sem ég hef unnið:

  1. Fiskvinnsla í Hraðfrystistöðinni Reykjavík, sumarið 1984
  2. Sveitastörf í minni ylhýru sveit á Hvítanesi í Skilmannahrepp (mörg sumur)
  3. Ísbúð (fór þá aðeins að bæta á mig, þrátt fyrir að hlaupa heim eftir vinnu sem var c.a. 10 km
  4. Héraðsdýralæknir á Ísafirði

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

  1. Fargo
  2. The Shawshank redemption
  3. Rokk í Reykjavík
  4. Cars

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  1. Reykjavík  Alltaf með reglulegu millibili
  2. Akureyri  Einn vetur 1987-1988
  3. Osló  1991-1998
  4. Ísafjörður  1999- er hér enn....

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. Aðþrengdar eiginkonur (algjörlega í uppáhaldi)
  2. Bráðavaktin (alltaf nóg að gerast)
  3. Beðmál í borginni
  4. Dýrin mín stór og smá.

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. Grikkland
  2. Lanzarote
  3. Franska Riverían
  4. Í sumarbústaðinn hjá bróður mínum.Bústaðurinn er rétt fyrir utan Reykjavík, kannski maður byggi sér lítinn kofa þar í framtíðinni... hver veit?

Fjórar síður sem ég skoða:

  1. BB.is
  2. MBL.is
  3. Skutull.is
  4. Skóli.is  Námið í garðyrkjuskólanum á hug minn allan þessa dagana.

Fernt sem ég held upp á að borða

  1. Lasagnae, sem ég bý til sjálf
  2. Djúpsteiktar rækjur
  3. Lambalæri ala mamma
  4. Draumur frá Freyju, svona litlir bitar.. namm

Fjórar bækur sem ég held upp á:

  1. Berlínaraspirnar Anna B Ragde
  2. Kuðungakrabbi  Anna B Ragde
  3. Þrúgur reiðinnar John Steinbekk... Lang lang besta bók sem ég hef lesið
  4. Sjálfstætt fólk  Meistaraverk

Fjórir staðir sem ég vildi vera á:

  1. Á Skarpó ásamt fjölskyldunni
  2. Karapískahafinu
  3. Labba laugaveginn í góðu veðri Frá Landmannalaugum í Þórsmörk
  4. Hestaferð .... en ekki á Dyjandisheiðinni í rigningu og roki

Fjórir sem ég ætla að klukka:

  1. Sigurjón Þórðarson
  2. Jóna Ben
  3. Nanna
  4. Vefritið.....

En sendi mynd af Ólöfu Dagmar og Bröndu við matarborðiðSept 2008 010. Bröndu líst rosa vel á eggið sem Ólöf er að borða.

 

 

 

 

 

 

 

 

SjáumstCool

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband